

DUO Armband með 18K gullhúðun
Tvær línur. Ein hreyfing.
DUO er óður til jafnvægis — tvær samsíða línur sem sveigjast mjúklega um úlnliðinn. Hönnunin er einföld en karakterrík og skapar fallegt form án þess að vera áberandi. Opið formið gefur armbandinu léttleika, en tvöföld línan býr yfir kyrrlátum styrk.
DUO er unnið úr 925 sterling silfri og með 18k gullhúðun sem sameinar endingu, hlýju og fágað yfirbragð.
Armbandið er stillanlegt og má móta varlega að úlnliðnum. Silfrið er nægilega sveigjanlegt til að laga sig að þér og tryggja þægilega og persónulega passun.
Tímalaust armband sem er hannað fyrir hversdagslega notkun — sterkt eitt og sér og fallegt með öðrum skartgripum.
Upplýsingar
- 925 sterling silfur
- Stillanlegt
- Hannað og handgert af Lilju í Reykjavík
Veldu valmöguleika


Featured product






Íslensk list og prent. Kort sem er hægt að nýta í listaverk síðar meir
Sædís Harpa er listakona sem er fædd og uppalin á Höfn í Hornafirði. Hún lauk meistaragráðu í listkennslu frá Háskóla Íslands árið 2022 og hefur síðan kennt bæði myndlist og tónlist, samhliða sjálfstæðri listsköpun. Hún sækir innblástur í hversdagslegu augnablikin sem við lítum oft fram hjá og varpar ljósi á fegurð þeirra í verkum sínum. Nýjasta verkefnið hjá Sædísi er Ljóð og Lag.
Stærð: A5, (10x15cm)
Þarf að skrifa inní kortið með pöntun? Við bjóðum uppá að skrifa inní kortið, einfaldlega bættu þínum texta með í “Notes” með pöntun. Einnig velkomið að senda okkur tölvupóst á info@lbj.is.
Pickup available at Shop location
Usually ready in 24 hours

Kort frá Sædísi Hörpu
Blóma kort
Shop location
Laugavegur 72
101 Reykjavík
Ísland
