




ROF hringur með 18k gullhúðun
Hrátt. Jarðbundið. Ófeimið.
ROF merkir veðrun og sækir innblástur í hljóðláta kraftinn sem mótar landslagið með tímanum. Vind sem mætir steini. Vatn sem grefur sig í gegnum berg. Náttúruna sem slípar formið með þrýstingi og þolinmæði.
Opið, skúlptúrískt yfirborðið minnir á hraungrýti og veðrað landslag, þar sem tómarúm og ljós mynda sterkt form. Hver sveigja hefur náttúrulegan blæ, eins og hringurinn hafi verið skorinn út frekar en framleiddur.
Hringurinn er unninn úr 925 endurunnu sterling silfri með 18k gullhúðun sem eykur endingu og gefur bjartari áferð. ROF er hannaður til að endast — bæði í efni og tjáningu.
Statement-hringur fyrir þau sem kunna að meta áferð, dýpt og afgerandi form.
Upplýsingar
- 925 endurunnið sterling silfur
- 18k gullhúðað fyrir aukna vörn gegn falli og bjartari gljáa
- Opið, skúlptúrískt form
- Hannað og handgert af Lilju í Reykjavík
- Þar sem við framleiðum ekki í miklu magni er ekki víst að þín stærð sé til á lager. Lilja getur þó útbúið hringinn í þinni stærð á 1–2 virkum dögum. Veldu einfaldlega „Specific size“ og skrifaðu stærðina þína í athugasemd með pöntuninni.
Gold vermeil er þykk 18 karata gullhúðun yfir gegnheilu sterling silfri - lúxusleg en viðkvæm. Forðist vatn, krem, ilmvatn og svita. Fjarlægið skartið fyrir sturtu, sund eða æfingar og geymið á þurrum stað. Pússið varlega með mjúkum klút ef þörf er á og forðist sterk hreinsiefni.
Veldu valmöguleika





Featured product






Íslensk list og prent. Kort sem er hægt að nýta í listaverk síðar meir
Sædís Harpa er listakona sem er fædd og uppalin á Höfn í Hornafirði. Hún lauk meistaragráðu í listkennslu frá Háskóla Íslands árið 2022 og hefur síðan kennt bæði myndlist og tónlist, samhliða sjálfstæðri listsköpun. Hún sækir innblástur í hversdagslegu augnablikin sem við lítum oft fram hjá og varpar ljósi á fegurð þeirra í verkum sínum. Nýjasta verkefnið hjá Sædísi er Ljóð og Lag.
Stærð: A5, (10x15cm)
Þarf að skrifa inní kortið með pöntun? Við bjóðum uppá að skrifa inní kortið, einfaldlega bættu þínum texta með í “Notes” með pöntun. Einnig velkomið að senda okkur tölvupóst á info@lbj.is.
Pickup available at Shop location
Usually ready in 24 hours

Kort frá Sædísi Hörpu
Blóma kort
Shop location
Laugavegur 72
101 Reykjavík
Ísland
