



Hlíf Eyrnalokkar
Hlíf merkir vernd eða skjól.
Þessir skúlptúrísku hálf-hringir eru handmótaðir úr þykku silfri, með mjúkri, umlykjandi sveigju sem situr nálægt eyranu. Yfirborðið er viljandi óreglulegt og mjúklega pússað, sem gerir hvert par örlítið ólíkt og gefur áferðinni náttúrulegan og lífrænan blæ.
Hlíf eyrnalokkarnir eru hannaðir til að vera formstórir og afgerandi í útliti, en samt þægilegir í notkun. Lágstemmt statement-skart þar sem formið og efnið fá að njóta sín.
Eyrnalokkarnir eru ekki þungir á eyranu.
Lengd: 18 mm, breidd: 8 mm. Hvor eyrnalokkur er 2,5 g að þyngd með pinna og festingu.
Efni
- 925 endurunnið sterling silfur.
Hvert par er handgert, svo lítil frávik í lögun og yfirborði eru hluti af hönnuninni.
Umhirða:
Til að varðveita yfirborð og áferð Hlíf eyrnalokkanna skal forðast snertingu við vatn, ilmvatn, krem og hreinsiefni. Taktu þá af fyrir sturtu, sund eða æfingar.
Geymdu eyrnalokkana á þurrum stað, helst í mjúkum poka eða öskju þegar þeir eru ekki í notkun. Þurrkaðu þá varlega með mjúkum, þurrum klút eftir notkun.
Rhodium- og gold vermeil-húðun slitnar náttúrulega með tímanum, eftir notkun og húðgerð. Með því að fara vel með skartgripina lengir þú líftíma húðunarinnar.
Veldu valmöguleika




Featured product



Hægt er að sækja/fá sent útprentað eða við sendum það með tölvupósti. Gjafabréfið er sent eftir að við móttökum pöntunina.
Á þessu námskeiði ert þú listamaðurinn þar sem þú mótar þinn eigin hring eða hálsmen með vaxi. Við fylgjum aðferð sem kallast "Lost Wax Casting" eða vaxmótum. Vaxið er ekki eins og venjulegt kertavax, heldur sérhannað fyrir vaxmótun. Aðferðin er þúsund alda gömul, í nútímavæddum búningi. Eftir námskeiðið tekur Lilja gripinn og býr til steypumót og hellir bræddu 925 silfri ofan í mótið. Steypuferlið tekur tvo daga, eftir það slípar Lilja gripinn og pússar upp. Við bjóðum einnig upp á að gullhúða gripinn með 18 karata gullhúðun. Bóka þarf þá miðann“ Mótaðu þitt skart - silfur með 18 karata gullhúðun". Námskeiðið er það sama en ef þú ert óviss um hvort þú viljir gullhúðun er hægt að kaupa hana auka eftir að skartið er klárt. Gjald fyrir gullhúðun er 5000 kr.
Innifalið:
Í heimakittinu færðu allt sem þarf til þess að móta skart með vaxmótun. Einnig fylgir með kennslumyndband og leiðbendingar. Kosturinn við heimakittið er að þú getur tekið þinn tíma í að móta þitt skart og æft þig. Það er hægt að hafa líka samband við Lilju ef það vantar einhverja auka aðstoð eða spurningar.
ATH að öll verkfærin sem fylgja með eru aðeins í láni og þarf að skila tilbaka.
Pickup available at Shop location
Usually ready in 24 hours

Heimakitt gjafabréf
Shop location
Laugavegur 72
101 Reykjavík
Ísland
Námskeið





