



Kvika earrings w. 18K goldplating
Kvika, líkt og bráðið berg — krafturinn sem býr undir yfirborðinu.
Þessir lokkar sækja innblástur í hráa áferð eldfjallalandslagsins og eru mótaðir eins og gullið hafi mýkst, hreyfst og sest í sitt endanlega form. Náttúrulegt yfirborðið grípur ljósið frá öllum áttum og skapar dýpt, hlýju og lágstemmda dramatík.
Kvika hringirnir eru áberandi en nettir og hannaðir til að lyfta hversdagslegu útliti með áferð og karakter.
Unnir úr 925 endurunnu sterling silfri með 18k gullhúðun, þar sem ábyrg efnisnotkun mætir vönduðum frágang.
Upplýsingar
- 925 endurunnið sterling silfur
- 18k gullhúðun
- Hæð: 15 mm
- Breidd: 4,3 mm
- Náttúrulegt, áferðarmikið yfirborð
- Hannaðir og handgerðir í Reykjavík
Sterkir einir og sér. Enn betri með öðrum skúlptúrískum skartgripum.
Gold vermeil er þykk 18 karata gullhúðun yfir gegnheilu sterling silfri - lúxusleg en viðkvæm. Forðist vatn, krem, ilmvatn og svita. Fjarlægið skartið fyrir sturtu, sund eða æfingar og geymið á þurrum stað. Pússið varlega með mjúkum klút ef þörf er á og forðist sterk hreinsiefni.
Veldu valmöguleika




Featured product



Hægt er að sækja/fá sent útprentað eða við sendum það með tölvupósti. Gjafabréfið er sent eftir að við móttökum pöntunina.
Á þessu námskeiði ert þú listamaðurinn þar sem þú mótar þinn eigin hring eða hálsmen með vaxi. Við fylgjum aðferð sem kallast "Lost Wax Casting" eða vaxmótum. Vaxið er ekki eins og venjulegt kertavax, heldur sérhannað fyrir vaxmótun. Aðferðin er þúsund alda gömul, í nútímavæddum búningi. Eftir námskeiðið tekur Lilja gripinn og býr til steypumót og hellir bræddu 925 silfri ofan í mótið. Steypuferlið tekur tvo daga, eftir það slípar Lilja gripinn og pússar upp. Við bjóðum einnig upp á að gullhúða gripinn með 18 karata gullhúðun. Bóka þarf þá miðann“ Mótaðu þitt skart - silfur með 18 karata gullhúðun". Námskeiðið er það sama en ef þú ert óviss um hvort þú viljir gullhúðun er hægt að kaupa hana auka eftir að skartið er klárt. Gjald fyrir gullhúðun er 5000 kr.
Innifalið:
Í heimakittinu færðu allt sem þarf til þess að móta skart með vaxmótun. Einnig fylgir með kennslumyndband og leiðbendingar. Kosturinn við heimakittið er að þú getur tekið þinn tíma í að móta þitt skart og æft þig. Það er hægt að hafa líka samband við Lilju ef það vantar einhverja auka aðstoð eða spurningar.
ATH að öll verkfærin sem fylgja með eru aðeins í láni og þarf að skila tilbaka.
Pickup available at Shop location
Usually ready in 24 hours

Heimakitt gjafabréf
Shop location
Laugavegur 72
101 Reykjavík
Ísland
Námskeið





